Skilmálar

Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur. Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og GÁP. Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða endurgreiðsla. GÁP áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pantanir, t.d. ef vara er vitlaust verðmerkt eða uppseld, og til að breyta verðum og vöruframboði. Viðskiptavinur fær þá endurgreitt eða getur valið sér aðra vöru.

 

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

 

Seljandi er Cinta2020 ehf kt.550419-0680, til húsa að Faxafeni 7, 108 Reykjavík. VSK nr. 137198

 

SKILAFRESTUR

 

Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan er endurgreidd að fullu innan 30 daga eftir að henni er skilað ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar, nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.Vörum er einnig hægt er að skila og skipta hjá Cinta2020 ehf. Faxafeni 7 á opnunartíma verslunar.

 

VERÐ

 

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK) og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í netverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar samanber ákvæði þess efnis hér að framan.
Greiðslumöguleikar
Seljandi notar örugga greiðslugátt frá Borgun. Hægt er að greiða með kreditkortum frá Visa og Mastercard, staðgreiða með millifærslu eða fá sent í póstkröfu en þá bætist við kröfukostnaður frá Póstinum.

 

EIGNARRÉTTARFYRIRVARI

 

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu.

 

TRÚNAÐUR

 

Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin.

 

LAGAÁKVÆÐI

 

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt . Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.

 

HÖFUNDARRÉTTUR

 

Allt efni á www.gap.is texti, grafík, lógó og myndir, eru eign Cinta2020 ehf.

 

VARNARÞING

 

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Skilmálar þessir gilda frá 20. maí 2011.Nánari upplýsingarEf þú þarft nánari upplýsingar, sendu okkur þá fyrirspurn á gap@gap.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.